Meirihluti þjóðarinnar lét ekki Grýlu slá sig út af laginu!

Einn megin málatilbúnaður ríkisstjórnarinnar og ESB-sinna fyrir samþykkt Icesave hefur nú leyst uppí svifryk.   Grýlan Moody's var auðvitað orðin leið á hræða Íslendinga og langaði í meira fjör, ekki síst eftir að forseti Ísalands púaði á hana í gegnum stóra Bloomberg-"hátalarann" um daginn. Skessan sneri sér því að stærri bita, sjálfum Kananum. Það fer einkar vel á því, enda ber hann meginsökina á heimskreppunni. Ráðherrarnir tveir sem gerðust svo djarfir að banka uppá hjá henni vestra, til að afsaka sig fyrir að hafa leyft sér að misnota hana í hræðsluáróðri hér heima á Klakanum, mega auðvitað þakka fyrir að sleppa án pústra og kaghýðingar. Enn þó þeir hafi sloppið núna þá bíður vöndurinn þeirra nánast óumflýjanlega í hóphýðingu í næstu Alþingiskosningum.

 


mbl.is Óbreytt mat hjá Moody's
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Daníel Sigurðsson

Höfundur

Daníel Sigurðsson
Daníel Sigurðsson
Véltæknifræðingur

Bloggvinir

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband